Fotbolti.net
25.01.07 - 15:23
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Ugo Ehiogu til Glasgow Rangers (Staðfest)

Ugo Ehiogu til Glasgow Rangers (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Ugo Ehiogu hefur ákveðið að ganga til liðs við Glasgow Rangers frá Middlesbrough og skrifaði hann undir átján mánaða langan samning við skoska félagið.
Ehiogu var í sex ár hjá Boro og spilaði þar 150 leiki eftir að hann kom frá Aston Villa fyrir átta milljónir punda. Í nóvember var hann í láni hjá Dennis Wise og félögum í Leeds og spilaði þar sex leiki.

,,Ég er mjög ánægður að vera hérna þrátt fyrir að ég er ennþá að aðlagast vegna stærðarinnar á svæðinu hérna. Ég vil bara þakka öllum hjá Middlesbrough sem fóru mjög atvinnumannslega að hlutunum varðandi mig," sagði Ehiogu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.