25.01.07 - 19:08
Magnús Már Einarsson
Markus Rosenberg til Werder Bremen (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Werder Bremen hefur keypt sænska framherjann Markus Rosenberg frá Ajax. Hollenska félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni nú seinnipartinn en kaupverð var ekki gefið upp.
Rosenberg sem er 24 ára var samningsbundinn Ajax til ársins 2009 en hann skoraði tuttugu mörk í 63 leikjum fyrir félagið.
Hann mun ekki geta leikið með Werder Bremen í Evrópukeppni Félagsliða þar sem hann hefur leikið fyrir Ajax í keppninni og er því ólöglegur.
Hann mun ekki geta leikið með Werder Bremen í Evrópukeppni Félagsliða þar sem hann hefur leikið fyrir Ajax í keppninni og er því ólöglegur.
Heimild: Sporting Life
