Fotbolti.net
25.01.08 - 14:30
Þórður Már Sigfússon

Gylfi Einarsson til Brann (Staðfest)

Gylfi Einarsson til Brann (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Landsliðsmaðurinn Gylfi Einarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska meistaraliðið Brann en þetta var kunngjört á vefsíðu félagsins fyrir stuttu.
Gylfi hefur verið án félags frá því í haust þegar hann var leystur undan samningi hjá Leeds United í Englandi.

,,Þetta er gleðidagur fyrir félagið. Við höfum krækt í gæðaleikmann sem mun gefa miðjuspilinu nýja vídd,” sagði Roald Bruun-Hanssen, yfirmaður íþróttamála hjá Brann, stuttu eftir undirskriftina.

Gylfi hefur áður verið á mála hjá liði í Noregi en hann lék með Lilleström um árabil í upphafi áratugarins við góðan orðstír.

Heimild: Vefsíða Brann

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.