Fotbolti.net
25.01.08 - 18:34
Magnús Már Einarsson

Marlon King til Wigan (Staðfest)

Marlon King til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur keypt framherjann Marlon King frá Fulham og hefur hann gert þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Allt stefndi í að King væri á förum til Fulham í síðustu viku en hann mun hafa fallið á læknisskoðun á þar.

King sem er 27 ára gamall flaug hins vegar í gegnum læknisskoðun hjá Wigan og hefur nú samið við félagið.

,,Þetta snýst allt um að taka tækifærin sem þú færð. Ég hef fengið eitt og ég hef tekið því," sagði King nú undir kvöld.

Á þessari leiktíð hefur King skorað ellefu mörk og verið í miklu stuði eftir að hafa misst af stórum hluta síðustu leiktíðar vegna hnémeiðsla.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.