Fotbolti.net
25.01.10 - 10:39
Hörður Snævar Jónsson

Danny Welbeck lánaður til Preston (Staðfest)

Danny Welbeck lánaður til Preston (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Danny Welbeck framherji Manchester United hefur verið lánaður til Preston North End út þessa leiktíð.
Welbeck er 19 ára gamall framherji og er hann fyrsti leikmaðurinn sem Darren Ferguson nýráðinn stjóri Preston fær til sín.

Darren hefur eflaust ekki átt í vandræðum með að fá kauða á láni enda faðir hans sjálfur Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United.

Welbeck hefur komið við sögu í ellefu leikjum á þessari leiktíð og skorað tvö mörk, bæði í deildarbikarnum.

Preston á í mikilli fallbaráttu en liðið er í 17 sæti en er þó sex stigum frá fallsæti.

Heimild: Heimasíða Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.