Fotbolti.net
25.01.10 - 13:04
Magnús Már Einarsson

Adlene Guedioura til Wolves (Staðfest)

Mick McCarthy stjóri Wolves.

Mick McCarthy stjóri Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur fengið franska miðjumanninn Adlene Guedioura á láni frá belgíska félaginu Carleroi út þessa leiktíð.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er annar leikmaðurinn sem Wolves fær frá belgísku félagi á innan við viku.

Í síðustu viku kom hinn belgíski Geoffrey Mujangi Bia einnig til Wolves á láni.

Mick McCarthy, stjóri Wolves, vonast til að þessir leikmenn hjálpi liðinu í baráttunni sem er framundan en liðið er sem stendur í sautjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.