25.01.10 - 18:32
Magnús Már Einarsson
Zurab Khizanishvili til Reading á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Íslendingaliðið Reading hefur fengið varnarmanninn Zurab Khizanishvili á láni frá Blackburn út tímabilið.
Þessi 28 ára gamli leikmaður er fyrirliði landsliðs Georgíu en hann hefur mikla reynslu.
Khizanishvili er varnarmaður en hann getur einnig leikið aftarlega á miðjunni og því fær Brynjar Björn Gunnarsson meiri samkeppni eftir komu hans til Reading.
Khizanishvili var fyrr á leiktíðinni á láni hjá Newcastle en sá lánssamningur rann út á dögunum.

Heimild: BBC