25.01.10 - 23:44
Hafliði Breiðfjörð
Sif Atladóttir til Saarbrucken (Staðfest)

Sif Atladóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sif Atladóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sif Atladóttir miðvörður Vals er gengin til liðs við Saarbrucken í Þýskalandi en hún skrifaði undir samning við félagið eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun um helgina.
Sif mun spila með liðinu á láni frá Val fram á sumar. Hún átti að snúa aftur í maí en líklegt er að hún geti ekki snúið aftur í Val fyrr en í sumar félagaskiptaglugganum sem stendur frá 15. - 31. júlí vegna félagaskiptareglna.
Hún fær leikheimild með liðinu í vikunni og gæti spilað í æfingaleik gegn 2. deildarliði um helgina.
Saarbrucken er í níunda sæti þýsku Bundeligunnar þegar tólf leikir hafa verið leiknir. Tólf lið leika í deildinni og Saarbrucken hefur fengið níu stig úr tveimur sigrum og þremur jafnteflum.
Næsti deildarleikur Saarbrucken er gegn Eintract Trier 6. febrúar næstkomandi en deildin hefur verið í vetrarfríi.
Sif Atladóttir var besti leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals á síðustu leiktíð en þegar aðeins var liðið á mótið hóf hún að leika sem miðvörður í liðinu og tókst mjög vel til.
Hún vann sér sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins á síðasta ári og var með liðinu á Evrópumóti kvennalandsliða,