Fotbolti.net
25.02.09 - 07:15
Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg og Kristín María frá Aftureldingu í ÍR (Staðfest)

Kristín María í leik með Aftureldingu í sumar.

Kristín María í leik með Aftureldingu í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kvennaboltinn
ÍR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í efstu deild kvenna á komandi leiktíð því þær Ingibjörg Magnúsdóttir og Kristín María Kristmannsdóttir eru komnar til félagsins frá Aftureldingu.
Ingibjörg Magnúsdóttir er 19 ára gamall markvörður. Hún lék þrjá leiki með Aftureldingu í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð og einn í bikarnum auk þess sem hún lék með 2. flokki félagsins.

Hún er uppalin hjá Val en gekk til liðs við Aftureldingu árið 2007 og spilaði þar í 1. deildinni er liðið komst í efstu deild fyrir tveimur árum.

Kristín María Kristmannsdóttir er 20 ára gömul. Hún lék níu leiki með Aftureldingu í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið fjölda leikja með meistaraflokki.

Hún lék áður með ÍR tímabilin 2004 og 2005 en hefur auk þess leikið með Fjarðabyggð og Leikni Fáskrúðsfirði. Samtals hefur hún leikið 52 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 11 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.