25.03.10 - 20:29
Magnús Már Einarsson
Dusko Tosic til QPR (Staðfest)

Tosic er öflugur hjólreiðamaður.

Mynd: Getty Images

Tosic er öflugur hjólreiðamaður.

Mynd: Getty Images
Queens Park Rangers hefur fengið vinstri bakvörðinn Dusko Tosic á láni frá Portsmouth út tímabilið.
Þessi 25 ára gamli Serbi kom til Portsmouth í janúar en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri með liðinu síðan þá.
,,Ég er ánægður með að vera hér, ég vil bara spila leiki og vonandi fæ ég tækifæri til þess hér,\" sagði Tosic.
,,Ég hef horft á nokkra leiki hjá QPR og það eru nokkrir mjög góðir leikmenn hér.\"
Tosic var einnig orðaður við Swansea en nú er hann kominn til QPR og möguleiki er á að hann spili sinn fyrsta leik gegn Preston um helgina.

Heimild: BBC