25.04.05 - 13:31
Jermaine Pennant til Birmingham (Staðfest)

Pennant skrifar undir

Pennant skrifar undir

Jermaine Pennant hefur skrifað undir þriggja ára samning við Birmingham. Þessi enski strákur kostaði 3 milljónir punda en hann lék áður með Arsenal. Tímabilið hefur verið æði skrautlegt hjá honum en hann sat í fangelsi í 3 mánuði fyrir ölvunarakstur en er nýkominn út.
Birmingham hefur einnig forgang til þess að framlengja samning hans um eitt ár en Steve Bruce stjóri liðsins var hæstánægður með kaupin: Ef við byrjum að tala um Jermaine sem knattspyrnumann þá hefur hann allt sem þarf" sagði Bruce á blaðamannafundi í dag.
"Það sem brást honum var lífsstíllinn hans. Ef hann kemur honum í lag þá er hann mjög spennandi kostur. Hann er þannig leikmaður sem ekki mörg lið hafa á að skipa. Við vonum sem klúbbur að ná að laða það besta fram úr honum og ef við náum því höfum við einstaklega hæfileikaríkan dreng innan okkar raða."
Pennant kom til Arsenal frá Notts County fyrir 2 milljónir punda og skoraði þrennu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum sem hann byrjaði. Hann náði þó ekki að festa sig í sessi á Highbury og var meðal annars lánaður til Leeds og Watford.