Fotbolti.net
25.04.06 - 06:46
Magnús Már Einarsson

Hallur íslandsmethafi í Hött (Staðfest)

Hallur íslandsmethafi í Hött (Staðfest)
Canon

Mynd: hottur.tk

Sóknarmaðurinn Hallur Kristján Ásgeirsson hefur gengið til liðs við Hött úr þriðju deild og þar með bætt íslandsmet sitt í félagaskiptum en hann hefur nú 21 sinni á ferlinum skipt um félag.
Eins og við greindum frá um helgina ákvað Hallur að hætta hjá Víkingi Ólafsvík og hefur hann nú farið í Hött en hann er löglegur fyrir leik liðsins gegn Leikni Fáskrúðsfirði í deildabikarnum á fimmtudaginn.

Hallur hefur eins og áður segir komið víða við en hann hefur meðal annars fengið tilboð um að gerast atvinnumaður með Larissa í Grikklandi og St. Mirren í Skotlandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.