25.05.06 - 23:59
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Rui Costa til Benfica (Staðfest)

Mun spila með Benfica á næsta tímabili

Mynd: Getty Images

Mun spila með Benfica á næsta tímabili

Mynd: Getty Images
Manuel Rui Costa gekk í dag til liðs við portúgalska stórveldið Benfica eftir að hafa losnað undir samning hjá AC Milan en hann var orðinn mjög þreyttur á bekkjarsetunni á San Siro.
Talið er að hinn 34. ára gamli Rui Costa hafi skrifað undir eins árs samning við Benfica en hann hóf einmitt sinn ferill með liðinu árið 1991 og var hjá þeim til 1994. Þaðan fór hann svo til Fiorentina áður en hann fór til AC Milan árið 2001.
,,Ég er kominn heim. Ég er kominn til baka með sömu ástríðu, ánægju og metnað og fyrir tólf árum. Ég er í góðu formi," sagði Rui Costa.
Rui Costa lagði landsliðsskóna á hilluna eftir Evrópumótið 2004 þar sem Portúgalar töpuðu í úrslitaleik mótsins gegn Grikkjum. Hann spilaði 94 leiki fyrir þjóð sína og skoraði í þeim 26 mörk.