Fotbolti.net
25.05.07 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Hermann Hreiðarsson til Portsmouth (Staðfest)

Hermann Hreiðarsson til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Varnarjaxlinn og íslenski landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson hefur yfirgefið Charlton og gengið til liðs við Portsmouth en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær.
,,Hann langar að vinna með Harry Redknapp," sagði Ólafur Garðarsson umboðsmaður Hermanns við Fótbolta.net en Portsmouth eru metnaðarfullir og eru á eftir fleiri leikmönnum.

,,Þeir eru búnir að fá Sylvain Distin og eru á eftir nokkrum öðrum leikmönnum," bætti Ólafur við.

Hermann sem er fastamaður í íslenska landsliðinu átti við meiðsli á hné að stríða á nýliðnu tímabili en þrátt fyrir það lék hann 32 leiki með liði Charlton sem féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Þessi hnémeiðsli þýða að hann getur ekki leikið með Íslendingum gegn Liechtenstein og Svíum í undankeppni EM í byrjun næsta mánaðar.

Hermann sem er 32 ára kom til Charlton frá Ipswich Town árið 2003. Hann skoraði alls fjögur mörk í 106 leikjum á ferli sínum hjá Charlton.

Auk þessara tveggja liða þá hefur Hermann einnig leikið með Wimbledon, Brentford og Crystal Palace á Englandi en hann er uppalinn hjá ÍBV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.