Fotbolti.net
25.05.07 - 11:15
Andri Fannar Stefánsson

Samuel til Bolton (Staðfest)

Samuel tæklar Cristiano Ronaldo.

Samuel tæklar Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Jlloyd Samuel hefur samþykkt að ganga til liðs við Bolton á frjálsri sölu frá Aston Villa. Samuel sem er 26 ára mun skrifa undir fjögurra ára samning 1. júlí.
Samuel gekk til liðs við Villa sem lærlingur en hann náði að leika 150 leiki fyrir félagið. Á þessu tímabili hefur honum þó gengið illa að festa sig í sessi í aðalliðinu.

,,Hann er fjölhæfur og gefur okkur möguleika í mörgum stöðum sem er mikilvægt fyrir okkar lið," sagði Sammy Lee um hann.

Samuel var einnig ánægður. ,,Ég var hjá Villa í tíu ár og þegar maður hefur verið svo lengi þar er maður orðinn eins og húsgagn. Mér fannst ég þurfa á breytingu að halda og ég vonast til þess að þessi skipti til Bolton leyfi mér að spila meira. Bolton er klúbburinn til að koma ferli mínum á beinu brautina."

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.