Fotbolti.net
25.05.07 - 15:38
Garðar Ingi Leifsson

Guðlaugur Victor til AGF (Staðfest)

Semur við AGF í júní

Semur við AGF í júní

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Hinn bráðefnilegi Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Fylkis skrifar undir tveggja ára samning við AGF í byrjun júní mánaðar.
Guðlaugur sem er á sextánda ári spilaði með íslenska U-17 ára landsliðinu í úrslitakeppni EM fyrr í mánuðinum. Hann fór á reynslu til AGF um mánaðarmótin ágúst/september í fyrra og var í eina viku.

,,Umboðsmaðurinn minn Guðlaugur Tómasson sendi mig út til AGF, þar sem ég var í eina viku. Þeim leist vel á mig og buðu mér samning sem ég skrifa svo undir í næsta mánuði," sagði Guðlaugur Victor í samtali við Fótbolta.net í dag.

Guðlaugur hefur áður búið í Danmörku og kvíðir ekkert fyrir að fara út.

,,Mér líst nokkuð vel á það, ég hef áður átt heima í danmörku þannig að ég er ekkert stressaður neitt og ég kann dönskuna vel þannig að mér hlakkar bara mjög mikið til," sagði Guðlaugur.

Guðlaugur Victor fór á reynslu hjá PSV einnig fyrr á árinu en segir hann að það hafi ekki hentað honum sem leikmanni.

,,Mér persónulega finnst hollenski boltinn ekki henta mér eins vel og danski boltinn, danski boltinn er mjög líkur íslenska boltanum og hann hentar mér mjög vel."

,,Þeir buðu mer út núna í maí að spila með þeim á móti en ég sagði nei. Mér leist líka bara betur á AGF þótt að PSV sé mjög stór klúbbur og aðstæðan frábær þá bara fann ég mig betur hja AGF þegar ég var þar heldur en hjá PSV. Ég er líka ad fara i mjög spennandi nám i Danmörku með boltanum," sagði Guðlaugur, en mamma hans Ásta, og systir hans Kristjana, flytja með honum út.

En svo að lokum, heldur þú að það verði ekki erfitt að fara frá Fylki?

,,Þetta á eftir að vera erfitt. Fylkir er frábært félag, aðstæðan og þjálfarar meiriháttar. Fylkir hefur gert mikid fyrir mig sem leikmann og persónu," sagði Guðlaugur Victor Pálsson að lokum við Fótbolta.net.
Guðlaugur(til hægri) ásamt landsliðsfélaga sínum Aaroni Paloamores

Guðlaugur(til hægri) ásamt landsliðsfélaga sínum Aaroni Paloamores

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.