25.05.11 - 15:48
Elvar Geir Magnússon
Andrea Pirlo orðinn leikmaður Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Andrea Pirlo var í dag kynntur sem nýr leikmaður Juventus en hann kemur frá AC Milan. Pirlo gerir þriggja ára samning við Juventus.
„Ég vel Juventus því ásamt Inter og Milan er þetta mikilvægasta félag á Ítalíu, Evrópu og heiminum öllum,\" segir Pirlo.
Þessi 32 ára leikmaður segir að metnaður Juventus til að komast aftur í fremstu röð hafi dregið sig til liðsins. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að hafa ákveðið að skrifa ekki undir nýjan samning við Ítalíumeistara Milan.
„Ég þurfti á tilbreytingu að halda,\" segir Pirlo sem hefur glímt við meiðsli undanfarin ár. „Ég er til í slaginn og býst við að spila í fjögur til fimm ár í viðbót.\"