Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. maí 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
Zlatan meiddur
Mynd: Getty Images
Sky Sport Italia segir að sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic hafi þurft að hætta á æfingu AC Milan þar sem hann meiddist.

Það mun koma í ljós á morgun hvers eðlis meiðslin eru.

Íþróttafréttamaðurinn Peppe Di Stefano segir að Zlatan hafi meiðst í lok æfingarinnar og að þetta virtust hafa verið meiðsli í kálfa.

Zlatan var að glíma við meiðsli í kálfa í janúar og febrúar og óttast að bakslag sé komið varðandi þau.

AC Milan er í sjöunda sæti ítölsku A-deildarinnar en óvíst er hvenær keppni fer af stað aftur.


Athugasemdir
banner
banner
banner