Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
banner
   mán 25. maí 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi Geir: Sýnir enn og aftur hvað fótboltinn sameinar fólk á erfiðum stundum
Með gullhanskann síðasta haust annars vegar og hins vegar í símanum á Kaplakrikavelli eftir að hafa unnið titilinn 2014.
Með gullhanskann síðasta haust annars vegar og hins vegar í símanum á Kaplakrikavelli eftir að hafa unnið titilinn 2014.
Mynd: Samsett mynd
Ingvar stóð vaktina í markinu í fyrri leik liðanna.
Ingvar stóð vaktina í markinu í fyrri leik liðanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur heimsækir á morgun Stjörnuna í Bestu deildinni. Leikurinn er færður út af þátttöku liðanna í Evrópuleikjum í sumar; gefur liðunum andrými í júlí. Jóhann Ingi Jónsson flautar til leiks á Samsungvellinum klukkan 19:15 annað kvöld.

Leikurinn á morgun verður styrktarleikur fyrir Ingvar Jónsson sem berst við krabbamein. Ingvar hefur varið mark Víkings undanfarin ár en áður en hann hélt út í atvinnumennsku lék hann hjá Stjörnunni og átti risastóran þátt í því að liðið varð Íslandsmeistari 2014. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í framtakið.

Venjulegur aðgangsmiði á leikinn mun kosta 2500 krónur (3000 á leikdegi) og hægt verður að greiða aukalega fyrir sérstaka Áfram Ingvar styrktarmiða, til styrktar Ingvars.

Knattspyrnudeild Víkings hefur einnig stofnað styrktarreikning sem hægt er að leggja inn á:
Reikningur: 0357-22-008868
Kennitala: 420787-1469

„Mér finnst þetta glæsilegt framtak, Víkingur og Stjarnan áttu samtal og mér finnst þetta frábært. Þetta sýnir enn og aftur hvað fótboltinn sameinar fólk á erfiðum stundum. Ég hvet alla til þess að taka þátt í þessu, Ingvar er að ganga í gegnum erfiða tíma og hann á að geta einbeitt sér að þeim bardaga. Það að fólk sýni stuðning og leggi þessu lið mun hjálpa mjög mikið. Ég hvet eindregið til þess," segir Sölvi Geir.

Allt annað að verja teiginn þegar Örvar er inn í
Aðeins um leikinn sjálfan. Víkingur kemur inn í leikinn eftir sjö deildarsigra í röð en Stjarnan hefur tapað fimm af síðustu sex deilarleikum sínum. Er öðruvísi, snúnara, að fara inn í leik gegn liði sem má segja að sé með bakið upp við vegg?

„Ég veit það ekki, það getur sennilega spilað eitthvað inn í sjálfstraustið þeirra. Þeir vilja 100% snúa genginu við og líta á þetta sem flottan leik til þess. En við spáum voða lítið í því. Við erum aðallega í því að fara yfir hvað þeir hafa verið að gera og hvernig við getum mætt. Við hugsum fyrst og fremst um að við séum upp á okkar besta, hugsum hvernig við viljum mæta inn í leikinn, sama hver andstæðingurinn er."

„Ég er virkilega sáttur með liðið og sérstaklega hvernig það hefur komið inn í síðustu tvo leiki. Þar vorum við að spila á móti liðum neðarlega í töflunni, við höfum séð það oft áður að það geta verið bananahýði og ég þekki það sjálfur sem fyrrum leikmaður að það getur verið erfitt að vera rétt stilltur fyrir svoleiðis leiki, í undirmeðvitundinni getur maður haldið að þetta verði auðveldari leikur og það er mjög hættulegt að hugsa þannig - ég sá það ekki hjá mínum mönnum í síðustu tveimur leikjum og ég er virkilega sáttur með hugarfar leikmanna."


Emil Atlason og Örvar Eggertsson spiluðu ekki með Stjörnunni í síðasta leik. Hefur það mikil áhrif á hvernig þið mætið þeim ef þeir verða ekki með?

„Við erum ekki að fara breyta því hvernig við mætum þeim eftir því hvort þeir spili eða ekki. En auðvitað eru leikmenn meðvitaðir um eiginleika þessa leikmanna. Það er allt annað að verja boxið með Örvar á fjærstönginni en einhvern annan. Breytan er bara hvernig við mætum hverjum og einum leikmanni," segir Sölvi Geir.
Slapp
banner
banner