Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
banner
   mán 25. maí 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Völdu mark Wilson það flottasta á tímabilinu - Sjáðu topp átta
Walesverjinn skoraði mark tímabilsins.
Walesverjinn skoraði mark tímabilsins.
Mynd: EPA
Aukaspyrnumark Ungverjans komst í topp þrjá.
Aukaspyrnumark Ungverjans komst í topp þrjá.
Mynd: EPA
Mark Harry Wilson fyrir Fulham gegn Crystal Palace var í uppgjörsþætti Match Of The Day á BBC valið mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Markavélarnar Alan Shearer og Wayne Rooney áttu lokaatkvæðið og má sjá öll mörkin í neðri spilaranum hér að neðan.

Dominik Szoboszlai, Emiliano Buendia, Tyler Adams, Harry Wilson, Harrison Reed, Dominik Solanke, William Osula og Kaoru Mitoma skoruðu átta flottustu mörk tímabilsins að mati þáttarins og í atkvæðagreiðslu áhorfenda voru mörkin sem Szoboszlai, Wilson og Reed valin þrjú bestu.

Mark Wilson kom eftir frábært spil við vítateig Palace og afgreiðslan frá Wilson, utanfótar með vinstri, var ekki af verri endanum. Alex Iwobi, Raul Jimenez og Wilson komu að markinu. Crystal Palace endaði reyndar á því að vinna leikinn, 1-2.

Markið hans Wilson


Öll mörkin og umræðan í MOTD

Harry Wilson wins BBC MOTD Goal of the Season for 2025/2026
by
u/herkalurk in
soccer

Slapp
banner
banner