25.06.08 - 13:04
Magnús Már Einarsson
Portsmouth fær Ben Sahar á láni frá Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur fengið Ben Sahar á láni frá Chelsea en lánssamningurinn gildir í sex mánuði.
Þessi efnilegi framherji frá Ísrael var á láni hjá Queens Park Rangers og Sheffield Wednesday á síðustu leiktíð og nú mun hann fá tækifæri til að láta ljós sitt skína í ensku úrvalsdeildinni.
Nokkur önnur félög höfðu áhuga á hinum 18 ára gamla Ben Sahar en hann valdi Portsmouth að lokum.
,,Ég hef alltaf viljað vera hluti af úrvalsdeildarliði og ég er ánægður með að vera kominn til Portsmouth,\" sagði Ben Sahar við heimasíðu félagsins.
,,Ég er tilbúinn fyrir þá áskorun að vera hjá svona stóru félagi. Ég vil vera hluti af því og sýna að ég verðskulda að vera hér,\" bætti Ben Sahar við.

Heimild: Sky