Fotbolti.net
25.06.09 - 10:36
Magnús Már Einarsson

Raul Albiol til Real Madrid (Staðfest)

Raul Albiol (til hægri) er kominn til Real Madrid.

Raul Albiol (til hægri) er kominn til Real Madrid.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur komist að samkomulagi um að kaupa varnarmanninn Raul Albiol frá Valencia en talið er að kaupverðið hljóði upp á fimmtán milljónir evra.
Albiol, sem er 23 ára gamall, hefur sjálfur samþykkt að gera fimm ára samning við Real Madrid.

Líklegt er að Albiol fái það hlutverk að leika í hjarta varnarinnar á næstu leiktíð ásamt Pepe.

Albiol er annar leikmaðurinn sem að Real Madrid fær í sumar en áður hafði Kaka komið frá AC Milan á 67 milljónir punda.

Þá er líklegt að Cristiano Ronaldo muni koma til félagsins frá Manchester United á 80 milljónir punda á næstu dögum.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.