Fotbolti.net
25.06.11 - 12:52
Magnús Már Einarsson

Paul Rachubka til Leeds (Staðfest)

Paul Rachubka til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið markvörðinn Paul Rachubka til liðs við sig en hann kemur frítt frá Blackpool.

Þessi þrítugi leikmaður fékk ekki nýjan samning hjá Blackpool en hann kom við sögu í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Rachubka ólst upp hjá Manchester United en hann hefur einnig leikið með Charlton og Huddersfield Town.

Kasper Schmeichel, núverandi aðalmarkvörður Leeds, verður líklega seldur á næstunni til að fá pening í kassann en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.