Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einar að taka við Víkingi? - Búinn að kveðja Örebro
Kvenaboltinn
Í þjálfarateymi U15 landsliðs kvenna árið 2023.
Í þjálfarateymi U15 landsliðs kvenna árið 2023.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingurinn Einar Guðnason er sterklega orðaður heimkomu en það er laust starf í Víkinni eftir að Víkingur tilkynnti í gær um starfslok þeirra John Andrews og Björns Sigurbjörnssonar sem höfðu stýrt meistaraflokki kvenna hjá félaginu.

Einar var þjálfari hjá Örebro í Svíþjóð og hefur undanfarið eitt og hálft ár starfað þar sem aðalþjálfari U19 kvennaliðs félagsins.

Örebro auglýsti í síðasta mánuði eftir nýjum þjálfara í þá stöðu og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Einar búinn að kveðja félagið.

Einar var síðast þjálfari hjá Víkingi tímabilið 2021 þegar hann var aðstoðarmaður Arnars Gunnlaugssonar þegar Víkingur vann tvennuna, var í því starfi samhliða því að vera yfirþjálfari yngri flokka. Hann er uppalinn hjá Víkingi og lék með meistaraflokki 2005 og hluta af tímabilinu 2006. Hann kom óvænt við sögu í Lengjubikarnum árið 2021 og skoraði þá eitt mark í öruggum sigri á Þór.

Víkingur er í 9. sæti Bestu deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti þegar átta leikir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni.
Athugasemdir
banner
banner