Fotbolti.net
25.07.06 - 08:10
Guðmundur Dagur Ólafsson

Julio Cesar til Olympiakos (Staðfest)

Julio Cesar vann Meistaradeildina árið 2000 með Real Madrid

Julio Cesar vann Meistaradeildina árið 2000 með Real Madrid

Canon

Mynd: Getty Images

Grísku meistararnir í Olympiakos gengu í gær frá kaupunum á brasilíska varnarmanninum frá mexíkóska liðinu Tigres.
Cesar skrifaði undir þriggja ára samning við félagið en hann hefur verið mjög víförull á ferlinum sínum. Hann hefur spilað fyrir Real Madrid, Real Valladolid og Real Sociedad á Spáni en auk þess hefur hann spilað fyrir AC Milan, Benfica og Bolton Wanderers.

Ekki hefur verið gefið upp kaupverðið fyrir Cesar, sem verður 28 ára í nóvember næstkomandi. Grískir fjölmiðlar telja þó að verðið sé eitthvað í kringum 1.1m evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.