Fotbolti.net
25.07.09 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Diego Tristan til Cadiz (Staðfest)

Tristan átti sínu bestu ár með Deportivo

Tristan átti sínu bestu ár með Deportivo

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum spænski landsliðsmaðurinn Diego Tristan hefur ákveðið að yfirgefa England og ganga til liðs við Cadiz í heimalandinu. Þessi snjalli sóknarmaður lék með West Ham á síðustu leiktíð þar sem hann kom oftar en ekki inn af varamannabekknum þegar hann fékk sénsinn.
Tristan, sem er orðinn 33. ára gamall, mun án nokkurs vafa vera mikill liðsstyrkur fyrir Cadiz sem mun freista þess að koma sér upp í La Liga á komandi tímabili, þar sem þeir spiluðu síðast fyrir fjórum árum.

Tristan hefur ekki sýnt sitt rétta andlit síðan hann spilaði með Deportivo La Coruna og hefur hann meðal annars verið óheppinn með meiðsli. Síðan hann yfirgaf Deportivo árið 2006 hefur hann spilað með Real Mallorca, Livorno á Ítalíu og West Ham á Englandi.

Frá árunum 2001 til 2003 spilaði Tristan fimmtán landsleiki fyrir Spán og skoraði í þeim þrjú mörk. Honum var ætlað að vera einn af lykilmönnum liðsins á Heimsmeistaramótinu í Japan og Suður-Kóreu árið 2002 en var ekki mikið vegna meiðsla.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.