Fotbolti.net
25.07.09 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Fyrirliði Marseille til Sunderland (Staðfest)

Lorik Cana

Lorik Cana

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvaldeildarfélagið Sunderland hefur fengið til sín albanska miðjumanninn Lorik Cana frá Marseille í Frakklandi.
Cana, sem er 25 ára gamall hefur verið að leika sem fyrirliði Marseille, en hann gerir fjögurra ára samning við Sunderland og er kaupverðið talið um 5 milljónir punda.

Hann er því þriðji leikmaðurinn sem Steve Bruce, stjóri Sunderland fær til liðsins í sumar, en hann hefur þegar fengið Fraizer Campbell og Paulo Da Silva.

Cana, sem verður 26 ára á mánudaginn lék 122 leiki fyrir Marseille og skoraði 17 mörk í þeim, en ásamt því hefur hann leikið 31 landsleik fyrir Albaníu og skorað 1 mark.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.