25.07.09 - 11:26
Gunnar Gunnarsson
Bolton fá Zat Knight frá Villa og Sam Ricketts frá Hull (Staðfest)
landsliðsmaður Suður-Kóreu einnig á leið til félagsins

Zat Knight mun leika með liði Bolton á næstu leiktíð.

Mynd: Getty Images

Bolton hefur gengið frá kaupum á tveimur varnarmönnum, annars vegar Zat Knight frá Aston Villa og hins vegar Sam Ricketts frá Hull en báðir leikmennirnir gera þriggja ára samninga við félagið.
Miðvörðurinn Zat Knight sem gekk í raðir Aston Villa árið 2007 frá Fulham fyrir um 3.5 milljónir punda náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliði liðsins og byrjaði inná í aðeins 13 leikjum á síðustu leiktíð.
Sam Ricketts er landsliðsmaður Wales og getur bæði spilað sem vinstri og hægri bakvörður en hann byrjaði inná í 27 leikjum á fyrsta tímabili Hull City í úrvalsdeild.
Þess má geta að leikmennirnir eru þriðju og fjórðu kaup Gary Megson þjálfara Bolton í sumar en áður hafði hann fengið Sean Davis á frjálsri sölu frá Portsmouth og einnig varnarmanninn Paul Robinson frá West Brom.
Bolton eru einnig nálægt því að landa samningum við landsliðsmann Suður-Kóreu, Lee Chung-Yong frá FC Seoul.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur verið í viku í Norður-Lundúnum en talið er líklegt að Lee muni skrifa fljótlega undir þriggja ára samning við Bolton en kaupverðið er áætlað vera um 2.1 milljón punda.
,,Samningurinn verður undirritaður þegar grænt ljós hefur verið gefið á atvinnuleyfið,\" sagði í yfirlýsingu frá Seoul.
Lee snýr aftur til Seoul á föstudag, sannfærður um að samningar náist.
,,Á öðrum degi mínum hér í Englandi gekk ég undir læknisskoðun og skoðaði æfingaaðstöðuna. Mér leist mjög vel á hana og varð eiginlega afbrýðissamur,\" sagði Lee.
,,Það hefur verið draumur minn að spila í Englandi þannig að ég er gríðarlega ánægður. Til þess að aðlagast þá þarf ég að þekkja liðsfélaga mína. Ég hitti Gary Megson þjálfara nokkrum sinnum. Hann talaði við mig en ég skil ekki orð í ensku þannig að ég vissi ekkert hvað hann var að segja,\" sagði Lee.
,,Við höfum ekki alveg gengið frá málunum varðandi samninginn en það verður vonandi gert þegar atvinnuleyfið verður samþykkt,\" sagði Lee sem verður sjöundi Kóreumaðurinn til að spila á Englandi.

Heimild: Soccernet