25.07.11 - 13:17
Magnús Már Einarsson
Farid Abdel Zato-Arouna til HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Botnlið HK í fyrstu deild karla hefur fengið miðjumanninn Farid Abdel Zato-Arouna á láni frá FH út tímabilið.
Farid er miðjumaður frá Togo en hann gekk til liðs við FH í vor eftir að hafa verið á reynslu hjá félaginu.
Farid hefur leikið með öðrum flokki FH í sumar og verið á bekknum í leikjum í Pepsi-deildinni en hann er fæddur 1992.
HK mætir KA í fyrstu deildinni annað kvöld og þar gæti Farid leikið sinn fyrsta leik með félaginu.