Fotbolti.net
25.07.11 - 17:28
Magnús Már Einarsson

Danny Gabbidon til QPR (Staðfest)

Danny Gabbidon til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Heiðar Helguson hefur fengið nýjan liðsfélaga hjá Queens Park Rangers en félagið hefur samiðvið varnarmanninn Danny Gabbidon.

Gabbidon kemur frítt til QPR en samningur hans við West Ham rann út fyrr í sumar.
Gabbidon var á reynslu hjá QPR í síðustu viku og Neil Warnock stjóri liðsins ákvað að bjóða honum eins árs samning.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem nýliðar QPR krækja í núna í sumar en áður höfðu Jay Bothroyd og Kieron Dyer komið til félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.