Fotbolti.net
25.07.11 - 18:14
Magnús Már Einarsson

Skoskur miðjumaður til KA (Staðfest)

Skoskur miðjumaður til KA (Staðfest)
Canon

Mynd: KA

KA hefur fengið liðsstyrk en skoski miðjumaðurinn Brian Gilmour mun leika með liðinu út tímabilið.

Gilmour er fæddur árið 1987 en hann lék með unglingaliði Rangers á sínum tíma.

Gilmour var síðast á mála hjá Stenhousemuir í heimlandinu en hann hefur einnig leikið með Queen of the South, Clyde, Lincoln City sem og Haka í Finnlandi.
,,Mér líst mjög vel á þennan leikmann og það sem við höfum séð af honum á hann eftir að styrkja liðið okkar mikið,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA í samtali við Fótbolta.net í dag.

Gilmour er kominn með leikheimild með KA og hann getur leikið með liðinu í mikilvægum leik gegn HK annað kvöld.

KA er sem stendur í tíunda sæti í fyrstu deildinni en félagið ætlar ekki að semja við kantmanninn Theo Furness sem var á reynslu í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.