Fotbolti.net
25.08.10 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Gestur Gylfason til Noregs (Staðfest)

Gestur Gylfason til Noregs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Gestur Gylfason, leikmaður Njarðvíkinga, mun ekki leika meira með liðinu í sumar en hann hefur skipt yfir í norskt neðri deildarlið.
Um er að ræða félag sem Marko Tanasic var að taka við en hann þjálfaði Njarðvíkinga 2008 og 2009.

Gestur, sem er 41 árs, hefur leikið 89 leiki með Njarðvík síðan hann kom til liðsins frá Keflavík árið 2006.

Þessi elgtanaði varnarjaxl hefur spilað sextán leiki með Njarðvík í fyrstu deildinni í sumar en liðinu hefur vegnað illa og situr sem fastast á botninum.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.