25.08.10 - 18:25
Magnús Már Einarsson
Yoann Gourcuff til Lyon (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Olympique Lyon hefur gengið frá kaupum á Yoann Gourcuff miðjumanni Bordeaux.
Þessi 24 ára gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við Lyon í dag en félagið keypti hann á 22 milljónir evra.

Gourcouff, sem á 22 landsleiki að baki með Frökkum, var ekki í byrjunarliði Bordeaux gegn PSG um helgina og eftir það var nokkuð ljóst að hann myndi yfirgefa félagið.
Gourcuff gekk til liðs við Bordeaux árið 2008 eftir dvöl hjá AC Milan en hann var besti leikmaðurinn í frönsku deildinni tímabilið 2008/2009.
Búist er við að Gourcuff leiki sinn fyrsta leik með Lyon þegar liðið heimsækir Lorient á laugardag.

Heimild: Reuters