Fotbolti.net
25.08.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Barcelona lánar Keirrison (Staðfest)

Barcelona lánar Keirrison (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Cruzeiro hefur fengið framherjann Keirrison á láni frá Barcelona út þetta ár.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Barcelona síðan hann kom til félagsins frá Palmeras á 14 milljónir evra árið 2009.
Síðan þá hefur Keirrison verið á láni hjá Benfica, Fiorentina og Santos í heimalandi sínu.

Keirrison átti síðan að hefja tímabilið í B-liði Barcelona áður en Cruzeiro krækti í hann á láni.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.