25.08.11 - 11:10
Magnús Már Einarsson
Samuel Eto´o til Anzhi Makhachkala (Staðfest)

Samuel Eto´o.

Mynd: Getty Images

Samuel Eto´o.

Mynd: Getty Images
Rússneska félagið Anzhi Makhachkala hefur keypt framherjann Samuel Eto´o frá Inter á 18,4 milljónir punda.
Suleiman Kerimov, eigandi Anzhi, hefur dælt pening í félagið að undanförnu og auk Eto´o hafa Roberto Carlos og Yuri Zhirkov meðal annars gengið í raðir Anzhi.
Eto´o mun sjálfur eiga vel fyrir salti í grautinn eftir samninginn hjá Anzhi því hann mun fá 10 milljónir evra í árslaun eða um 8,7 milljónir punda.

Eto´o stóðst læknisskoðun í gær og hann mun hitta nýju liðsfélagana sína í Moskvu í dag.
Kamerúninn mun síðan leika sinn fyrsta leik með Anzhi gegn Rostov á laugardaginn en hann mun leika í treyju númer 99.
Eto´o hefur á ferli sínum orðið deildarmeistari á Ítalíu og Spáni og unnið Meistaradeildina þrívegis. Þá hefur hann fjórum sinnum verið valinn knattspyrnumaður ársins í Afríku.

Heimild: BBC