Fotbolti.net
25.09.06 - 12:01
Hafliði Breiðfjörð

Daninn Rene Carlsen til Vals (Staðfest)

Valsmenn fá liðsstyrk.

Valsmenn fá liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Valsmenn urðu í dag fyrsta liðið til að bæta við sig leikmanni fyrir Landsbankadeildina 2007 þegar þeir sömdu við danska leikmanninn Rene Carlsen til tveggja ára.
Frá þessu var greint á vefsíðu félagsins en Rene Carlsen er vinstrifótar varnar og miðjumaður. Hann kemur frá Randers í Danmörku en það er sama lið og mætti ÍA í UEFA Cup í sumar og sama lið og Dennis Siim var hjá áður en hann gekk í raðir FH á miðju sumri.

Carlsen er 26 ára gamall en verður 27 ára næstkomandi laugardag. Hann hefur leikið með Randers undanfarin 4 ár kom þangað frá Vorup sem er uppeldisklúbbur þeirra Randers manna. Hann hefur leikið 70 leiki með Randers.

Valur endaði í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.