Fotbolti.net
25.09.09 - 13:24
Magnús Már Einarsson

Atli Már Rúnarsson tekur við Dalvík/Reyni (Staðfest)

Atli Már Rúnarsson tekur við Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Atli Már Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Dalvík/Reyni í 3.deild karla en hann mun einnig spila með liðinu.
Atli Már lék í sumar ellefu leiki í markinu hjá Þór en hann var auk þess aðstoðarmaður Lárusar Orra Sigurðssonar og þá kom hann einnig að þjálfun í öðrum flokkum.

,,Þetta var flott þjálfarateymi hjá Þór og góðir þjálfarar sem eru þar en ég er bara aðeins að minnka við mig í vinnu,\" sagði Atli Már við Fótbolta.net.

Áður hafði Atli Már verið spilandi þjálfari hjá Magna í þrjár leiktíðir en í fyrra var hann valinn í lið ársins í 2.deildinni.

Hjá Dalvík/Reyni tekur Atli Már við þjálfuninni af Jóhanni Hreiðarssyni sem var spilandi þjálfari hjá liðinu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.