Fotbolti.net
25.10.06 - 21:49
Magnús Már Einarsson

Kristján Valdimarsson í Fylki (Staðfest)

Kristján Valdimarsson í leik með Fylki árið 2005.  Hann mun leika aftur í Árbænum næsta sumar.

Kristján Valdimarsson í leik með Fylki árið 2005. Hann mun leika aftur í Árbænum næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Varnarmaðurinn Kristján Valdimarsson hefur ákveðið að ganga aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Fylki eftir að hafa leikið í eitt ár með Grindvíkingum.
Þetta staðfesti Kristján við Fótbolti.net í kvöld en hann mun skrifa undir þriggja ára samning við Fylkismenn á næstu dögum. Kristján sem er 22 ára er eins og fyrr segir uppalinn hjá Fylki og lék með þeim áður en hann gekk til liðs við Grindvíkinga síðastliðið haust.

Hann lék tólf leiki með þeim í Landsbankadeildinni í sumar en fékk á dögunum leyfi til að losna undir þriggja ára samning sem hann hafði gert við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.