Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 25. október 2020 16:51
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu geggjaða afgreiðslu Jermain Defoe gegn Livingston
Mynd: Getty Images
Rangers lagði Livingston að velli í skoska boltanum í dag með tveimur mörkum gegn engu.

Hinn 38 ára gamli Jermain Defoe, fyrrum leikmaður West Ham og Tottenham, skoraði seinna mark leiksins á sextándu mínútu. Hann afgreiddi knöttinn frábærlega eftir langa sendingu frá hægri bakverðinum markaóða James Tavernier.

Defoe slapp innfyrir varnarlínuna og skoraði viðstöðulaust en það hefði enginn markvörður í heimi getað séð þessa afgreiðslu fyrir.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en þetta var 22. deildarmark Defoe frá komu sinni til Rangers. Hann hefur komið við sögu í 40 leikjum í skosku deildinni, yfirleitt komandi inn af bekknum.

Rangers [2]-0 Livingston - Defoe 16' from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner
banner