Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. október 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tite: Coutinho bætti við fjórum kílóum af vöðvum hjá Bayern
Mynd: Getty Images
Brasilíski landsliðsþjálfarinn Tite er hæstánægður með líkamsástandið á Philippe Coutinho eftir dvöl hans á lánssamningi hjá FC Bayern á síðustu leiktíð.

Coutinho vann þrennuna með Bayern og segir Tite kantmanninn hafa bætt fjórum kílóum af vöðvum á sig á þessu eina tímabili.

Coutinho hefur verið að gera vel frá komu sinni aftur til Barcelona. Hann er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar á 405 mínútum.

„Coutinho er leikmaður sem einbeitir sér mikið að styrktaræfingum og hann bætti sig gríðarlega á tíma sínum hjá Bayern. Hann þyngdist um fimm kíló hjá Bayern, fjögur þeirra voru vöðvar," sagði Tite.

Coutinho, 28 ára, er lykilmaður í brasilíska landsliðinu og hefur gert 18 mörk í 63 leikjum. Hann spilaði báða leikina í landsleikjahlénu og skoraði í 5-0 sigri gegn Bólivíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner