Fotbolti.net
25.11.06 - 15:56
Magnús Már Einarsson

Ásbjörn og Þorsteinn í ÍR (Staðfest)

Þorsteinn Einarsson (lengst til vinstri) er farinn í ÍR.

Þorsteinn Einarsson (lengst til vinstri) er farinn í ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

ÍR úr annarri deild hefur fengið liðsstyrk því að Ásbjörn Jónsson og Þorsteinn V. Einarsson hafa gengið til liðs við félagið. Ásbjörn kemur úr Hvíta Riddaranum en Þorsteinn úr Breiðablik.
Þorsteinn sem er 21 árs er uppalinn hjá Fjölni en hann hefur verið varamarkvörður Blika undanfarin ár. Í sumar spilaði hann einnig með U-23 ára liði félagsins og fékk fá mörk á sig í þeirri keppni sem Blikar unnu.

Ásbjörn sem er 32 ára getur leikið bæði í miðju og vörn en hann hefur leikið með Hvíta Riddaranum undanfarin tvö ár og þjálfaði hann liðið einnig í fyrra. Ásbjörn lék einnig áður með Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.