Fotbolti.net
25.11.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Kiki Musampa til AZ Alkmaar (Staðfest)

Kiki Musampa til AZ Alkmaar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski kantmaðurinn Kiki Musampa hefur gengið til liðs við AZ Alkmaar og lék hann sinn fyrsta leik með félaginu í gær gegn WIllem II.
Musampa var án félags eftir að hafa yfirgefið Trabzonspor í Tyrklandi í sumar en hann hætti hjá félaginu vegna ágreinings varðandi samning sem hann hafði gert.

Musampa byrjaði ferilinn hjá Ajax í heimalandinu og lék með Bordeaux og Atletico Madrid áður en hann fór til Manchester City á láni í eitt og hálft ár.

Hann var fyrr í haust á reynslu hjá Sunderland en nú hefur hann samið við AZ.

Hjá AZ Alkmaar eru þrír Íslendingar á mála en það eru þeir Grétar Rafn Steinsson, Aron Einar Gunnarsson og Kolbeinn Sigþórsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.