Liverpool og Man Utd fylgjast með þróun mála hjá Vinícius - Liverpool hefur átt í viðræðum um Antoine Semenyo - Gallagher eftirsóttur
   þri 25. nóvember 2025 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH fær unglingalandsliðsmann frá Breiðabliki (Staðfest)
Mynd: FH
FH hefur krækt í unglingalandsliðsmanninn Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki.

Hann skrifar undir samning við FH sem gildir út tímabilið 2028.

Hann er fæddur árið 2009 og á að baki þrjá leiki með U15 landsliðinu.

Leikina spilaði hann í október 2023 á æfingamóti í Póllandi.

Hann lék með 2. og 3. flokki Breiðabliks í sumar.

Hann er markmaður og fór með U17 ára landsliðinu til Georgíu fyrr í vetur og var varamarkmaður liðsins.
Athugasemdir