26.01.07 - 06:00
Christopher Samba til Blackburn (Staðfest)

Mark Hughes.

Mynd: Getty Images

Mark Hughes.

Mynd: Getty Images
Mark Hughes, stjóri Blackburn, er í skýjunum með að hafa landað stórum og sterkum varnarmanni frá Kamerún, Christopher Samba að nafni. Samba þessi kemur frá Hertu Berlín í Þýskalandi og skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Samba er 22 ára og hefur verið við æfingar hjá Blackburn að undanförnu. "Chris kom í síðustu viku og hann sannaði sig fyrir okkur. Hann er stór og mög sterkur, hann er líka fljótur og útsjónarsamur. Þá sendir hann boltann vel og er mjög góð viðbót við hópinn okkar," sagði Hughes.
Samba sjálfur lýsti yfir ánægju sinni með að vera kominn til Englands en honum er ætlað að fylla það skarð sem Lucas Neill skildi eftir sig þegar hann fór frá Blackburn til West Ham í vikunni.
Samba sjálfur lýsti yfir ánægju sinni með að vera kominn til Englands en honum er ætlað að fylla það skarð sem Lucas Neill skildi eftir sig þegar hann fór frá Blackburn til West Ham í vikunni.
Heimild: BBC
