Fotbolti.net
26.01.07 - 11:32

Tveir Slóvakar til Bolton (Staðfest)

Slóvakarnir eru mættir á Reebok.

Slóvakarnir eru mættir á Reebok.

Canon

Mynd: Hjalti Þór Hreinsson

Enska úrvaldeildarfélagið Bolton fengið til sín tvo leikmenn frá Slóveníu, þá Lubomir Michalik og Zoltan Harsanyi frá FC Senec. Michalik hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Bolton en Harsanyi kemur til félagsins á lánssamningi út tímabilið.
Michalik er varnarmaður og er 23 ára gamall. "Strákarnir eru hér upp á framtíðina að gera. Lubomir hefur hrifið mig mikið. Hann hefur frábæra nærveru og lítur út fyrir að vera til í slaginn. Zoltan hefur mikla hæfileika," sagði Sam Allardyce, stjóri Bolton um leikmennina.

"Lubomir er sterkur í loftinu og hefur alla burði til að ná langt. Hann hefur einnig reynslu frá landsleikjum. Zoltan kemur að láni út tímabilið með langtímasamning fyrir augum. Það sem ég hef séð af honum er að hann hefur yfir heilmiklum náttúrulegum hæfileikum," bætti Allardyce við.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.