Fotbolti.net
26.01.07 - 15:50
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Benjamin Lauth til Stuttgart (Staðfest)

Lauth í leik með HSV

Lauth í leik með HSV

Canon

Mynd: Getty Images

Benjamin Lauth, sóknarmaður Hamburg, hefur gengið til liðs við VfB Stuttgart á láni út tímabilið en honum er ætlað að fylla skarð Jon Dahl Tomasson sem fór til Villarreal í vikunni.
Lauth vonast nú til að koma feril sínum af stað en hann hefur ekki staðist væntingar hjá HSV síðan hann kom frá 1860 Munchen árið 2004.

Þá hefur Dietmar Beiersdorfer, íþróttafulltrúi Hamburg, greint frá því félagi ætli sér að fá til sín nýjan sóknarmann í leikmannaglugganum í janúiar og séu ennþá að leita.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.