26.01.07 - 16:12
Magnús Már Einarsson
Folan til Wigan (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Wigan hefur keypt Caleb Folan framherja Chesterfield á 500 þúsund pund og hefur þessi 24 ára gamli leikmaður gert þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Folan sem hóf feril sinn hjá Leeds stóðst læknisskoðun hjá Wigan í dag og í kjölfarið var gengið frá kaupunum.
Þessi knái framherji hefur vakið athygli með Chesterfield í enska deildabikarnum þar sem hann náði að skora gegn Manchester City, West Ham og Charlton.
Þessi knái framherji hefur vakið athygli með Chesterfield í enska deildabikarnum þar sem hann náði að skora gegn Manchester City, West Ham og Charlton.
