Fotbolti.net
26.01.07 - 21:09
Magnús Már Einarsson

Hreinn Hringsson í Þór (Staðfest)

Hreinn í leik gegn Þórsurum en hann mun leika með þeim næsta sumar.

Hreinn í leik gegn Þórsurum en hann mun leika með þeim næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Dagsljós

Sóknarmaðurinn reyndi Hreinn Hringsson hefur gert eins árs samning við Þór úr fyrstu deild en þetta kemur fram á heimasíðu Vikudags á Akureyri.
Hreinn sem er 32 ára gamall yfirgaf KA í haust en hann var næstmarkahæstur í fyrstu deildinni síðastliðið sumar með níu mörk í 18 leikjum.

Hreinn spilaði með Þórsurum 1994-1997 og á að baki sex leiki með liðinu í efstu deid. Hann er því ekki ókunnugur félaginu en alls hefur Hreinn skoraði nítján mörk í 78 leikjum í efstu deild hér á landi.

Hann hefur einnig leikið með skosku félögunum Dumbarton, Patrick Thistle og East Stirling en hann styrkir Þórsara mikið fyrir næsta tímabil í fyrstu deildinni.

Heimild: Vikudagur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.