26.01.09 - 10:14
Alexander Freyr Tamimi
Mullins og Pelé til Portsmouth (Staðfest)

Hayden Mullins er hér í baráttunni við Eið Smára

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fengið þá Hayden Mullins og Pelé til liðs við sig. Hinn 29 ára Mullins skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning en Pelé kemur á láni frá Porto út tímabilið.
Sá síðarnefndi mun hugsanlega verða leikmaður Portsmouth til lengri tíma eftir tímabilið.
Peter Storrie framkvæmdarstjóri Portsmouth hafði þetta a segja:
„Hayden og Pele munu styrkja miðjuna okkar til muna. Við þurftum að styrkja miðja miðjuuna og því höfum við fengið þessa tvo leikmenn. Þeir hafa báðir verið undir smásjá okkar um nokkurt skeið.“
„Hayden er reyndur leikmaður sem hefur spilað mjög vel í gegnum tíðina. Hann hefur mikla reynslu af úrvalsdeildinni og það er einmit það sem við þurftum.“
„Hann vildi fá að spila reglulega og því kom hann til okkar frá West Ham.“
„Pelé er ungur og spennandi leikmaður. Hann gerði vel fyrir Inter áður en hann fór til Porto.“
„Eftir að Porto breytti um stjóra breyttist ástandið og hann vildi ólmur komast burt.“
„Hann er dýr leikmaður, svo að við þurfum að skoða vandlega hvort við munum kaupa hann eftir að lánssamningurinn rennur út. Þetta er svipað og við gerðum með Nadir Belhadj.“
„Við vonum að hann muni standa sig mjög vel. Þetta er sterkur strákur sem getur hlaupið mikið um völlinn.“

Heimild: Setanta