Fotbolti.net
26.01.09 - 12:30
Alexander Freyr Tamimi

Ben Watson til Wigan (Staðfest)

Ben Watson er vinstra megin á þessari mynd

Ben Watson er vinstra megin á þessari mynd

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan hefur gengið frá kaupunum á Ben Watson leikmanni Crystal Palace og er kaupverðið tvær milljónir punda.
Keppinautar Wigan í Middlesbrough reyndu einnig að næla sér í leikmanninn en í þessari orustu var það Wigan sem bar sigur af hólmi.

Watson hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning á JJB leikvanginum eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun fyrr í dag.

Þessi 23 ára leikmaður mun vonandi hjálpa að fylla í skarðið sem Wilson Palacios skildi eftir sig en Hondúrasinn gekk til liðs við Tottenham á dögunum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.